|
Bréf til nemenda í 10. bekk og foreldra/ forráðamanna !
- Kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur í 10. bekk og forráðamenn þeirra var haldin þann 28. janúar s.l. í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Þar gafst tækifæri til að kynna sér á einum stað það framhaldsnám sem í boði er á höfuðborgarsvæðinu.
- Fellaskóli stendur fyrir heimsóknum í nokkra framhaldsskóla. Allir nemendur munu heimsækja Fjölbrautaskólann í Breiðholti föstudaginn 26. febrúar kl. 10:00. Auk þess fara nemendur í skólakynningar í þá skóla sem flestir nemendur óskuðu eftir að skoða. Eftirtaldir skólar verða líklega heimsóttir: Menntaskólinn í Kópavogi og Borgarholtsskóli. Auglýsingar um þessar heimsóknir verða á töflu í sal Fellaskóla og eru nemendur beðnir að fylgjast með þeim.
- Við viljum sérstaklega vekja athygli á opnum húsum í framhaldsskólum. Þangað geta nemendur farið á eigin vegum með foreldrum sínum og kynnt sér þá skóla sem þeir hafa áhuga á. Vil ég hvetja foreldra ásamt börnum sínum til að nýta sér þessi tækifæri þar sem skólaheimsóknum er að fækka.
Í opnum húsum framhaldsskólanna eru námsráðgjafar og yfirleitt stjórnendur skólans til viðtals. Þar geta nemendur og foreldrar kynnt sér námsframboð, húsnæði, inntökuskilyrði og félagslíf viðkomandi skóla.
- Eftirtaldir framhaldsskólar hafa nú þegar tilkynnt opin hús en tilkynningar/ auglýsingar koma einnig oft í dagblöðunum:
Opin hús í framhaldsskólum
Janúar – mars 2010
Allir þriðjudagar 19. janúar – 16. mars kl. 15:00 Menntaskólinn í Reykjavík (Heimsóknin tekur 45 mín. Tilkynna þarf heimsókn til Guðrúnar Þorbjargar námsráðgjafa í síma 545-1929 eða á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
).
Febrúar 2010
Fimmtudagurinn 18. febrúar kl. 16:00 – 18:00 Menntaskólinn Hraðbraut
Miðvikudagurinn 24. febrúar kl. 16:00 – 18:00 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Miðvikudagurinn 24. febrúar kl. 18:00 – 20:00 Verzlunarskóli Íslands
Laugardagurinn 27. febrúar kl. 12:00 – 16:00 Tækniskólinn
(Skrúfu- og kynningardagur. Mæting í anddyri á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti – kynningar kl. 13, 14 og 15).
Mars 2010
Fimmtudagurinn 4. mars kl. 17:00 – 19:00 Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Þriðjudagurinn 9. mars kl. 13:30 – 16:00 Iðnskólinn í Hafnarfirði
Þriðjudagurinn 9. mars kl. 16:00 – 18:00 Menntaskólinn í Kópavogi
Fimmtudagurinn 11. mars kl. 13:30 – 16:00 Iðnskólinn í Hafnarfirði
Fimmtudagurinn 11. mars kl. 17:00 – 19:00 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Miðvikudagurinn 17. mars kl. 17:00 – 19:30 Menntaskólinn við Sund
Fimmtudagurinn 18. mars kl. 17:30 – 20:00 Menntaskólinn við Hamrahlíð
Apríl 2010
Fimmtudagurinn 8. apríl kl. 17:30 – 19:30 Kvennaskólinn
Fyrirhugað þann 6. júní Menntaskólinn í Reykjavík
Fyrirhugað í júní Verzlunarskóli Íslands
- Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga rétt á skólavist í framhaldsskóla. Því er nemendum í tilteknum grunnskólum tryggður forgangur að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Forgangsskóli Fellaskóla er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
- Upplýsingar um framhaldsskóla og inntökuskilyrði má m.a. finna á heimasíðum framhaldsskólanna. Nemendur í 10. bekk hafa fengið kynningu á framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og námi á framhaldsskólastigi í lífsleiknitímum í vetur.
- Rafræn innritun í framhaldsskóla er tvískipt, þ.e. nemendur fæddir 1994 og eru að ljúka námi úr 10. bekk grunnskóla sækja um 12.-16. apríl 2010 og geta endurskoðað val sitt 7.-11. júní 2010.
Foreldrar/forráðamenn nemenda í 10. bekk fá bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti þar sem gerð er grein fyrir fyrirkomulagi innritunarinnar en nánari upplýsingar um innritunarmálin eru á www.menntagatt.is/innritun
- Bók frá Menntamálaráðuneytinu “Nám að loknum grunnskóla” verður í ár eingöngu gefin út á netinu. Finna má hana á www.menntagatt.is. Bókin er þar einnig á ensku, pólsku, litháisku, rússnesku, serbnesku, spænsku, tælensku og víetnömsku. Í bókinni má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar t.d. um inntökuskilyrði, námsbrautir í framhaldsskólum og fleira sem gott er að nýta sér við val framhaldsskóla og einnig eftir að í framhaldsskóla er komið.
- Námsráðgjafi í Fellaskóla mun veita nemendum ráðgjöf og aðstoð ef óskað er varðandi innritun í framhaldsskóla.
25. febrúar 2010
Með kveðju,
Guðrún Erla Ingvadóttir, náms- og starfsráðgjafi
sími: 411-7530,
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
|