Skip to content

Frístundastarf í Fellaskóla

Frístundastarf í Fellaskóla - Vinafell

Verkefnið 1, 2 og Fellaskóli, þar sem frístundastarf nemenda í 1. og 2. bekk er samþætt skólastarfi. Þar eru öll börnin í skipulögðu skóla- og frístundastarfi til kl. 15:40 sem veitir börnum og foreldrum þeirra heildstæða þjónustu. Markmið er að auka tíma barnanna í íslensku málumhverfi og félagsfærni þeirra.

Fjölbreytt starf frístundar er hannað að þörfum barnanna og út frá áhugasviði þeirra. Vinafell tekur fullan þátt í starfi og innleiðingu Draumaskólans Fellaskóla þar sem áherslan er á mál og læsi og tónlist og sköpun.

Frístundaheimilið Vinafell bíður upp á þjónustu gegn gjaldi frá 15:40-17:00. Opið er í Vinafelli á starfsdögum, í jóla- og páskaleyfi Fellaskóla. Lokað er í vetrarleyfi og á starfsdögum frístundar.

Sumarfrístund er starfrækt í Vinafelli í 7 vikur í sumarleyfi Fellaskóla.

Nemendur í 3. og 4. bekk geta tekið þátt í frístundastarfi í Hraunheimum sem er safnfrístund fyrir Fellaskóla og Hólabrekkuskóla.

 

Bryndís Snorradóttir deildarstjóri yngra stigs og samþætts skóla- og frístundastarfs er forstöðumaður frístundar og Sara Mist Jóhannsdóttir er aðstoðarforstöðumaður.

IMG_3074

Allir á heimavelli

Einn tveir og Fellaskóli!

Annað verkefni sem við erum að vinna að kallast Einn tveir og Fellaskóli og miðast við að búa til samfelldan skóladag þar sem kennslutími og frístundastarf ná að mynda eina heild. Krakkarnir í fyrsta og öðrum bekk eru þá í skólanum og í frístundastarfi frá klukkan átta á morgnana til kl. 15:40 á daginn. Þetta þýðir að skóladagurinn er lengri en gefur aftur á móti möguleika á að fella frístundastarfið að skóladeginum. Þetta er öðruvísi en hefðbundin dægradvöl að því leyti að frístundastarfið fer fram inn í sjálfu skólastarfinu.“

32804410_1601028636662109_5673028701340565504_o

3. - 4. bekkur

Hraunheimar

Forráðamönnum býðst, gegn gjaldi, að skrá börn sín í safnfrístund fyrir nemendur í 3. og 4. bekk á vegum Frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs. Þar eru nemendur Fellaskóla og Hólabrekkuskóla saman í frístundastarfi frá kl. 13:40 til 17:00 og er þeim fylgt frá skóla í frístundaheimilið. Safnfrístund er staðsett er í Hraunbergi. Þeir forráðamenn sem vilja nýta sér þjónustu frístundaheimilisins skrá börn sín í gegnum rafræna Reykjavík.

Miðberg

Unglingastig

Frístundastarf fyrir 5. - 10. bekk

Frístundastarf á miðstigi sækja nemendur til Miðbergs eða í íþróttafélögin.

Félagsmiðstöðin Miðberg býður nemendum unglingadeilda upp á fjölbreytt frístundastarf. Opin hús, böll og klúbbastarf er meðal þess sem boðið er upp á.