Almennt um þjónustumiðstöðina
Í Þjónustumiðstöð Breiðholts er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta til íbúa í Breiðholti, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæsluráðgjöf, frístundaráðgjöf og ýmis fagleg þjónusta til stofnana og aðila í hverfinu.
Þú getur pantað tíma í ráðgjöf og/eða fengið allar nánari upplýsingar um þjónustuna með því að hringja í þjónustumiðstöðina í s. 411 1300 eða senda tölvupóst.
Markmiðið með þjónustumiðstöðvum borgarinnar er að gera þjónustu aðgengilegri fyrir íbúa og efla þverfaglegt samstarf sérfræðinga í málefnum barna og fjölskyldna og auka þannig lífsgæðin í höfuðborginni. Jafnframt leggja þjónustumiðstöðvarnar mikla áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka.
Hverfisstjóri Breiðholts er Óskar Dýrmundur Ólafsson og gegnir hann jafnframt framkvæmdastjórastöðu Þjónustumiðstöðvar Breiðholts.